Delta-Kappa-Gamma. Félag kvenna í fræðslustörfum

Þetta er vefur Delta Kappa Gamma á Íslandi

The Delta Kappa Gamma Society International

The Delta Kappa Gamma Society International eru alþjóðasamtök kvenna í fræðslustörfum sem voru stofnuð af 12 konum í Austin í Texas 1929. Höfuðstöðvar samtakanna eru í Austin og þar er heimasíðu Delta Kappa Gamma Society International ritstýrt. Alþjóðasamtökin hafa nú landsdeildir í mörgum þjóðlöndum auk Bandaríkjanna.

Íslenska landsdeildin var stofnuð árið 1975 með Alfa - deild í Reykjavík en landssambandið var stofnað 1977.  Íslenska landssambandið tilheyrir Evrópusvæði sem stofnað var 1998. Á Íslandi eru starfandi tíu deildir, þrjár eru á höfuðborgarsvæðinu og ein í hverjum landshluta þ.e. á Akureyri, á Vesturlandi, á Suðurlandi, á Austurlandi,  á Suðurnesjum og á Vestfjörðum. Deildirnar starfa sjálfstætt og halda a.m.k. fjóra fundi á ári. Deildirnar mynda landssamband og er haldið landssambandsþing annað hvert ár á oddatölu.

Landssambandið gefur út fréttabréf tvisvar á ári. Konum er boðin þátttaka í Delta Kappa Gamma samtökunum. Þær sem ganga í samtökin hljóta full réttindi sem félagar í deild, landssambandi og alþjóðasamtökunum. Nýjar deildir eru stofnaðar við hátíðlega athöfn og einnig eru nýir félagar teknir inn í starfandi deildir með viðhöfn.

© Landssamband Delta Kappa Gamma á Íslandi

Fréttir

Vorfréttabréfið komið á vefinn

Nú er vorfréttabréfið komið á vefinn en eins og ykkur rekur ef til vill minni til var ákveðið að það yrði einunguis birt á vefnum en ekki prentað og dreift til félagskvenna. Við minnum þó deildir á að prenta blaðið út fyrir þær félagskonur sem ekki eru tölvutengdar.


Nýjar myndir

Myndir frá vorþinginu í Lágafellsskóla 17. maí síðastliðinn ásamt myndum frá leiðtoganámskeiðinu sem haldið var deginum áður, eru komnar á vefinn hér undir Myndir

Frá landssambandsforseta

Landssambandsstjórnin fundaði um daginn og lagði drög að framkvæmdaráðsfundinum í haust. Það gleymdist að taka myndir í góða veðrinu,

Lesa meira

Og þá er það Etadeild... :-)

Enn bætist í hóp þeirra deilda sem hlotið hafa tengingu og merki frá Alþjóðasambandsvefnum. Í dag bættist Etadeild í hópinn. Til hamingju með það Etadeild! :-)

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning