Alfadeildin, fyrsta deild DKG samtakanna á Íslandi, var stofnuð 7. nóvember 1975 í Reykjavík. Nokkru áður hafði Maria Pierce komið til
landsins og haldið fund með íslenskum konum sem voru framarlega í flokki þeirra kvenna sem störfuðu að skólamálum.
Stofnfélagar voru kennarar af öllum skólastigum. Það þótti nokkur nýlunda þegar kennarar af öllum skólastigum sameinuðust
í einu félagi en það reyndist mikill styrkur.
Fyrst í stað voru fundir haldnir í heimahúsum en eftir að konum í deildinni fjölgaði hafa þeir verið haldnar æ oftar í
skólum og stofnunum.
Stofnfélagar Alfadeildar voru 18 en nú eru félagar þar 42. Fyrstu árin beindi deildin m.a. kröftum sínum að því að
lesa og fara í gegnum frumvörp til laga um skóla- og menntamál, skrifa umsagnir um þau og senda Alþingi. Má þar nefna frumvörp til laga um
grunnskóla, framhaldsskóla og Kennaraháskóla Íslands.
Á síðari árum er algengara að fengnir séu fyrirlesarar til að koma og halda erindi á fundum í deildinni og hefur verið fjallað um
ýmis efni tengd menntun og menningu. Enn fremur hafa ýmsar stofnanir verið heimsóttar og þær kynntar.
Uppfærður: mán 26.apr 2010