Delta-Kappa-Gamma. Félag kvenna í fræðslustörfum

Þetta er vefur Delta Kappa Gamma á Íslandi

Velkomin á vef Betadeildar

Beta-deild Delta Kappa Gamma, félags kvenna í fræðslustörfum, var stofnuð á Akureyri 2. júní 1977.

Stofnfélagar voru konur úr Barnaskóla Akureyrar, Lundarskóla, Hrafnagilsskóla, Laugalandsskóla og Þelamerkurskóla. Tveimur árum áður hafði Alfa-deild verið stofnuð í Reykjavík.

Fyrsti formaður Beta-deildar var Edda Eiríksdóttir.

Verkefni deildarinnar hafa verið margvísleg í gegnum tíðina en stærsta verkefnið sem konur í deildinni hafa tekið sér fyrir hendur er að gefa út póstkort með myndum Elísabetar Geirmundsdóttur, listakonunnar í Fjörunni, og bók um hana. Þá höfum við einnig reynt að fylgjast með því helsta sem hefur verið að gerast í mennta- og menningarmálum.

Fundir eru haldnir 5-7 sinnum yfir veturinn og landssambandsþing annað hvert ár. Þá eru Evrópuþing einnig annað hvert ár. Á seinni árum hafa gengið til liðs við deildina konur sem tengjast öllum skólastigum.

Fréttir

Bókalistinn kominn á vefinn

Á janúarfundi Betadeildar er venjan að segja frá þeim bókum sem lesnar hafa verið nýlega. Nú er listi yfir bækurnar komnar hér á vefinn undir þessari slóð: http://dkg.muna.is/betadeild/page/beta_bokafundur/.

Lesa meira

Gleðilegt ár

Stjórn Betadeildar óskar Betasystrum sem og öllum DKG systrum gleðilegs árs og þakkar samstarfið og samveruna á liðnu ári. Um leið minnum við á fyrsta fund ársins sem er bókafundurinn okkar góði. Hann verður haldinn á heimili Bjarkar Sigurðardóttur að Stokkahlöðum 1, Eyjafjarðarsveit og hefst klukkan 19:30 að vanda.

Ferð í Lauga í Reykjadal

Vetrarstarf Betadeildar haustið 2009 hófst með menningar- og skemmtiferð í Reykjadalinn. Tekið var á móti okkur í framhaldsskólanum þar sem Arnór Benónýsson og Sverrir Haraldsson kynntu fyrir okkur skólahald og sögu staðarins.

Lesa meira

Vottun

Í dag fékk Betadeild vottun frá alþjóðasambandinu á vefsíðunni sinni og leyfi til að flagga tákni þar um á síðunni :-)

Dagatal

« Júlí 2010 »
SMÞMFFL
 123
45678910
11121314151617
18192021222324
25262728293031

Mynd augnabliksins

betadeild-2-442aefdf369ea.jpg

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 1349

Auglýsingar

Vottun Beta_3
Vottun Beta_2
Vottun Beta_1

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning