Delta-Kappa-Gamma. Félag kvenna í fræðslustörfum

Þetta er vefur Delta Kappa Gamma á Íslandi

Velkomin á vef Etadeildar

Etadeild Delta Kappa Gamma var stofnuð í Reykjavík 6. júní 1997. Deildarkonur eru af höfuðborgarsvæðinu og starfa á ýmsum sviðum fræðslumála. Þannig eru í deildinni tungumálakennarar, sérkennarar, námsráðgjafar, skólastjórnendur í grunnskóla og framhaldsskóla, kennari í upplýsingatækni, sjúkraþjálfari, háskólakennarar og fræðikonur á sviði menntamála.

Haldnir eru u.þ.b. sex fundir á vetri þar sem konur fræðast um nýjungar á sviði menntunar-, fræðslu- og uppeldismála, ræða og skoða álitamál frá ýmsum hliðum, njóta samvista hver við aðra og styrkja þannig vináttutengslin.

Stjórn Etadeildar 2009-2010 er þannig skipuð:

Brynhildur Anna Ragnarsdóttir formaður
Bryndís Sigurjónsdóttir varaformaður
Inga Margrét Róbertsdóttir ritari
Kirsten Friðriksdóttir gjaldkeri

Fréttir

Aðalfundur

Aðalfundur verður haldinn á Litlu-Brekku mánudaginn 19. apríl kl. 18 - 20:30.

Fundur í Norðlingaskóla 9. mars

Kæru Eta- og Gamma-systur!
Næsti fundur Eta-deildar verður þriðjudaginn 9. mars í Norðlingaskóla.  Við bjóðum konunum í Gamma-deild til fundarins. Fundurinn hefst kl. 18 og verður slitið ekki síðar en kl. 21.

Kl. 18 tekur Sif Vígþórsdóttir, skólastjóri Norðlingaskóla og Eta-systir, á móti okkur. Sophie Kofoed-Hansen flytur okkur orð til umhugsunar.

Fyrir 1800 krónur fáum við

Lesa meira

Fundarboð

Heilar og sælar Eta-systur
Fyrsti fundur í Eta-deild á nýju ári verður haldinn miðvikudaginn 17. febrúar nk. Fundurinn verður haldinn á Grand Hótel í salnum Háteigi B á 4. hæð og hefst stundvíslega kl 18. Fundi verður slitið ekki síðar en kl. 21. Okkur býðst sérstakt verð á heitum rétti og kaffi á kr. 2.500.  Um er að ræða ferskasta hráefnið hverju sinni. 

 

Lesa meira

Næsti fundur 17. febrúar

Fyrsti fundur á nýju ári verður haldinn að Grand Hóteli, miðvikudaginn 17. febrúar kl. 18-21.  Takið daginn frá en nánari dagskrá kemur innan tíðar.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning