Delta-Kappa-Gamma. Félag kvenna í fræðslustörfum

Þetta er vefur Delta Kappa Gamma á Íslandi

Velkomin á vef Gammadeildar

Gammadeild var stofnuð í Reykjavík, 5. júní 1977 og er þriðja deildin sem stofnuð var á Íslandi.
Stofnendur deildarinnar voru 16 talsins og var fyrsti formaður Pálína Jónsdóttir.

Gammakonur koma  úr ýmsum og ólíkum störfum í þjóðfélaginu og láta sig varða margvísleg mál á sviði menningar og menntamála. Átta til níu fundir eru haldnir á ári hverju, en auk þess eru Gammakonur duglegar að sækja landssambands- og vorþing samtakanna sem og alþjóða- og Evrópuþingin.

Gammakonur eru 37 talsins og afar duglegar að mæta á fundi, sem oft eru haldnir í heimahúsi. Auk þess heimsækjum við  vinnustaði hverrar annarrar, skóla eða aðra staði sem við fræðumst um.

Stjórn Gammadeildar 2008-2010:

Björg Eiríksdóttir, formaður
Hrefna Þórarinsdóttir, varaformaður
Helga G. Halldórsdóttir, ritari
Jóhanna Einarsdóttir, meðstjórandi
Árný Elíasdóttir, gjaldkeri

Fráfarandi formaður er Ingibjörg Jónasdóttir

Umsjónarmenn vefsins eru Ingibjörg Jónasdóttir og Björg Eiríksdóttir

Fréttir

Aðalfundur Gammadeildar

Aðalfundur Gammadeildar verður 31. maí 2010 í Kríunesi. Nánar síðar.

Vorþing 17. apríl

Enginn fundur verður í Gammadeild í apríl, en vonandi mæta sem flestar á vorþingið 17. apríl.
Einnig er bent á leiðtoganámskeiðið föstudaginn 16. apríl.
Sjá nánar á landssambandssíðunni.

Fundur í Gammadeild

Næsti fundur verður þriðjudaginn 23.mars

Staður: Rauðikross Íslands að Efstaleiti 9 í Reykjavík. Helga Halldórsdóttir tekur á móti okkur.

Tími : Þriðjudagurinn 23. mars, kl. 19:15

Umfjöllunarefni: Ein af okkar konum Sigrún Aðalbjarnardóttir mun segja
okkur frá rannsóknum sínum.  Þar er af mörgu að taka ......spennandi!

Boðið verður upp á súpu og brauð í upphafi fundar. Kostnaður 1500
krónur.

Vonast til að sjá ykkar sem allra flestar.

Látið mig vita sem fyrst.

Kveðja Björg Eiríksdóttir

Víetnamísk orðabók

Gaman er að segja frá því að Anh-Dao í Gammadeild hefur gefið út víetnamíska orðbók í samvinnu við Valdísi Stefánsdóttur.

  Lesa meira

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning