Delta-Kappa-Gamma. Félag kvenna í fræðslustörfum

Þetta er vefur Delta Kappa Gamma á Íslandi

Ávinningur og styrkir

Ávinningur af þátttöku í Delta Kappa Gamma samtökunum er víðtækur og fjölbreyttur. Unnið er eftir markmiðum samtakanna en þau spanna vítt svið og gefa mikla möguleika til leiks og starfs.

Þeim konum sem starfað hafa í þessum samtökum, ber saman um að þátttakan gefi þeim margfaldan ávinning og veiti þeim gleði og ánægju.

Flestar telja að mesti ávinningurinn sé sú vinátta sem myndist milli félaga eða systra í samtökunum. Einnig telja þær að þátttakan efli faglega vitund þeirra, þjálfi þær í stjórnunarstörfum, efli kynni milli landshluta, landa og heimsálfa og treysti sambönd milli kvenna á ólíkum skólastigum og jafnframt opni þeim nýja sýn á störf annarra og minnki bil milli skólastiga. Ennfremur er mikill ávinningur í að hitta fólk víðs vegar að úr atvinnulífinu, heyra viðhorf þess, bæta við sig þekkingu og skiptast á skoðunum.

Möguleiki er á að sækja svæðisfundi Evrópusvæðisins, sem Ísland á aðild að, eða annarra svæða í Bandaríkjunum sem haldnir eru á oddatölu og/eða alþjóðaþingið sem haldið er annað hvert ár á jafnri tölu oftast í hinum ýmsu borgum Bandaríkjanna.

Hægt er að sækja um að vera gestafyrirlesari í tengslum við samtökin og fá þannig möguleika á að koma sínum viðhorfum áleiðis til heimsins. Einnig berast félagskonum ýmis tilboð varðandi námskeið á vegum alþjóðasamtakanna eða hinna ýmsu landssamtaka.

Samtökin verja árlega ákveðinni fjárupphæð til styrkja og viðurkenninga af ýmsum toga.

Námsstyrkjasjóður - International Scholarship. Fyrir félagskonur sem hyggja á framhaldsnám. Doktorsnemar ganga að öllu jöfnu fyrir um þennan styrk.

Gullni gjafasjóðurinn - Golden Gift Fund(leiðtogaþjálfun/2). Styrkir félagskonur til þátttöku í námskeiðum á vegum samtakanna.

Educational Foundation  (þróunarverkefni)

Luicile Cornetet (tvenns konar)

Styrkur til fyrirlesara - International Speakers Fund. Félagar geta sótt um styrk til fyrirlestrahalds. Sett er skilyrði að samtakanna sé getið og þau kynnt.

Nánari upplýsingar um styrkina  nálgast á heimasíðu alheimssambandsins en þar má einnig nálgast umsóknareyðublöð ásamt upplýsingum um umsóknarfresti.

Einnig má nálgast upplýsingar hjá landssambandsstjórn og námsstyrkjanefnd.

Námsstyrkir til annarra en DKG félaga


World Fellowships. Námið er stundað í Bandaríkjunum. Nokkur hundruð konur, víðs vegar að úr heiminum, hafa hlotið slíkan styrk

Höfundaverðlaun - Educator´s Award. Árlega er einum eða fleiri kvenrithöfundum veitt verðlaun sem er vegleg fjárupphæð. Verðlaunahafar verða að eiga heima í aðildarfélögum Delta Kappa Gamma en þurfa ekki að vera í samtökunum.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning