Meginhlutverk sjóðsins er að styrkja félagskonur í Delta Kappa Gamma á Íslandi sem vinna að lokaverkefnum í meistara- og doktorsnámi
eða öðru sambærilegu framhaldsnámi.
1. Námsstyrkjasjóður heyrir beint undir stjórn landssambands Delta Kappa Gamma á Íslandi. Einn styrkur er veittur annað hvert ár, það ár sem landssambandsþing er haldið. Stjórn ákveður hvaða upphæð komi til úthlutunar hverju sinni og tilkynnir úthlutunarnefnd um það.
2. Á tveggja ára fresti, þegar kosin er ný landssambandsstjórn í samtökunum, eru þrjár konur skipaðar í úthlutunarnefnd, námstyrkjasjóðsnefnd.
3. Stjórn landsambandsins ber ábyrgð á að auglýsa úthlutun úr sjóðnum. Styrkir eru að jafnaði auglýstir í haustblaði Fréttablaðs Delta Kappa Gamma og á heimasíðu samtakanna. Jafnframt eru formenn deilda beðnir um að vekja athygli á auglýsingunni meðal félaga.
4. Umsóknarfrestur um styrk er til og með 1. mars. Úthlutunarnefnd skal að jafnaði hafa lokið störfum einum mánuði síðar og tilkynna landssambandsstjórn þá þegar um tillögur sínar með bréfi undirrituðu af nefndarmönnum.
5. Einungis félagar í Delta Kappa Gamma á Íslandi geta sótt um styrk.
6. Styrk má veita til eftirfarandi verkefna:
7. Þegar velja þarf milli umsækjenda sem uppfylla skilyrði skal, m.a. tekið tillit til virkni umsækjenda í samtökunum og þess hversu lengi hann hefur verið félagi.
8. Styrkurinn er afhentur á landssambandsþingi.
9. Ári eftir að styrkur er veittur, að jafnaði fyrir næsta landssambandsþing, skal styrkþegi, með stuttri greinargerð, gera stjórn grein fyrir hvernig hann nýtti styrkinn.
10. Komi upp ágreiningur innan námsstyrkjanefndar vegna úthlutunar, skal honum vísað til landssambandsstjórnar.
Nánari upplýsingar, reglur sjóðsins og umsóknareyðublöð má nálgast hjá formanni námsstyrkjasjóðsnefndar,
Ingu Úlfsdóttur í Epsilondeild, sími 482 3199, netfang:irores@centrum.is.
Einnig má nálgast gögnin hjá öllum formönnum deilda.
Umsóknir skulu sendar til formanns nefndarinnar.
1. Námsstyrkjasjóður heyrir beint undir stjórn landssambands Delta Kappa Gamma á Íslandi. Einn styrkur er veittur annað hvert ár, það ár sem landssambandsþing er haldið. Stjórn ákveður hvaða upphæð komi til úthlutunar hverju sinni og tilkynnir úthlutunarnefnd um það.
2. Á tveggja ára fresti, þegar kosin er ný landssambandsstjórn í samtökunum, eru þrjár konur skipaðar í úthlutunarnefnd, námstyrkjasjóðsnefnd.
3. Stjórn landsambandsins ber ábyrgð á að auglýsa úthlutun úr sjóðnum. Styrkir eru að jafnaði auglýstir í haustblaði Fréttablaðs Delta Kappa Gamma og á heimasíðu samtakanna. Jafnframt eru formenn deilda beðnir um að vekja athygli á auglýsingunni meðal félaga.
4. Umsóknarfrestur um styrk er til og með 1. mars. Úthlutunarnefnd skal að jafnaði hafa lokið störfum einum mánuði síðar og tilkynna landssambandsstjórn þá þegar um tillögur sínar með bréfi undirrituðu af nefndarmönnum.
5. Einungis félagar í Delta Kappa Gamma á Íslandi geta sótt um styrk.
6. Styrk má veita til eftirfarandi verkefna:
a. Vegna vinnu við meistaraprófs- og/eða doktorsverkefni og skal umsækjandi
sýna fram á að verkefnið sé komið vel á veg. Styrkinn má einnig nota til
kynningar á slíku verkefni sé því nýlokið.
b. Vegna verkefna í sambærilegu framhaldsnámi og skal umsækjandi sýna
fram á að verkefnið sé komið vel á veg. Styrkinn má einnig nota til
kynningar á slíku verkefni sé því nýlokið.
sýna fram á að verkefnið sé komið vel á veg. Styrkinn má einnig nota til
kynningar á slíku verkefni sé því nýlokið.
b. Vegna verkefna í sambærilegu framhaldsnámi og skal umsækjandi sýna
fram á að verkefnið sé komið vel á veg. Styrkinn má einnig nota til
kynningar á slíku verkefni sé því nýlokið.
7. Þegar velja þarf milli umsækjenda sem uppfylla skilyrði skal, m.a. tekið tillit til virkni umsækjenda í samtökunum og þess hversu lengi hann hefur verið félagi.
8. Styrkurinn er afhentur á landssambandsþingi.
9. Ári eftir að styrkur er veittur, að jafnaði fyrir næsta landssambandsþing, skal styrkþegi, með stuttri greinargerð, gera stjórn grein fyrir hvernig hann nýtti styrkinn.
10. Komi upp ágreiningur innan námsstyrkjanefndar vegna úthlutunar, skal honum vísað til landssambandsstjórnar.
Þannig samþykkt af stjórn landssambands
Delta Kappa Gamma á Íslandi
6. nóvember 2006
Delta Kappa Gamma á Íslandi
6. nóvember 2006
Einnig má nálgast gögnin hjá öllum formönnum deilda.
Umsóknir skulu sendar til formanns nefndarinnar.
Uppfærður: fös 8.jan 2010


