Delta-Kappa-Gamma. Félag kvenna í fræðslustörfum

Þetta er vefur Delta Kappa Gamma á Íslandi

Þinghald

Þinghald Delta Kappa Gamma á Íslandi er með þeim hætti að annað hvert ár eru haldin svokölluð landssambandsþing en hin árin svokölluð vorþing.

Á landssambandsþingum eru jafnframt haldnir aðalfundir samtakanna þar sem kosin er ný stjórn til tveggja ára. Landssambandsþing standa yfir í tvo daga og er dagskrá vegleg með fjölbreyttum erindum, hátíðakvöldverði og skemmtiatriðum.
Vorþing eru svokölluð fræðsluþing. Þau standa yfir hluta úr degi og eru mismunandi fræðsluþemu yfirskrift þingsins hvert ár. Allajafna er boðið upp á fjölbreytt og áhugaverð erindi.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning