Stefna Delta Kappa Gamma hljóðar svona:
„Alþjóðasamtökin Delta Kappa Gamma stuðla að auknum fræðilegum og persónulegum þroska kvenna í fræðslustörfum og gæðum í menntun og uppeldisstörfum“.
Markmið samtakanna eru:
Að efla tengsl kvenna sem vinna að menntamálum/fræðslustörfum víðsvegar í heiminum.
Að heiðra konur sem standa eða hafa staðið framarlega á einhverju sviði menntamála/fræðslumála eða eru að vinna markverð störf
í þágu þeirra.
Að efla starfsáhuga og stöðu kvenna í fræðslustörfum.
Að stuðla að æskilegri lagasetningu og styðja hvers konar viðleitni til umbóta í menntamálum almennt og fyrir konur í
fræðslustörfum.
Að veita konum, sem skara fram úr í menntamálum, styrki til framhaldsnáms í háskóla og styrkja konur í öðrum löndum sem vinna
að fræðslustörfum.
Að efla persónulegan og faglegan þroska félagskvenna og hvetja þær til virkni.
Að fræða félagskonur um það sem efst er á baugi í efnahagsmálum, félagsmálum, stjórnmálum og menntamálum og
stuðla með því að vaxandi skilningi og virkri þátttöku þeirra í samfélagi þjóðanna.
Uppfærður: fös 21.nóv 2008


