Á Íslandi eru starfandi tíu deildir með 280 félagskonum. Þrjár eru á höfuðborgarsvæðinu og ein í hverjum
landshluta þ.e. á Akureyri, á Vesturlandi, á Vestfjörðum, á Suðurlandi, á Austurlandi og á Suðurnesjum.
Deildirnar starfa sjálfstætt og halda a.m.k. fjóra fundi á ári.
Deildirnar mynda landssamband og er haldið landssambandsþing annað hvert ár á oddatölu og skiptast deildir á að halda þingið ásamt
landssambandsstjórn.
Landssambandið gefur út fréttabréf tvisvar á ári og er ritstjóri valinn af stjórn. Þess utan fá félagskonur
mánaðarlegt fréttabréf alþjóðasamtakanna og fagtímaritið "Bulletin", sem kemur út fjórum sinnum á ári. Á
alþjóðaþinginu 2006 var samþykkt að eitt eintak af fréttabréfinu og tvö eintök af Bulletin verði framvegis einungis birt með
rafrænum hætti hér á heimasíðunni.
Hver deild starfar sjálfstætt og velur sér verkefni eftir áhuga og þörfum félaga í deildinni. Öll tengjast störfin markmiðum
alþjóðasamtakanna. Landssambandið getur lagt fram tillögur að verkefnum og deildir geta ákveðið að vinna að sameiginlegu verkefni. Hægt er
að sækja verkefni eða hugmyndir til alþjóðasamtakanna þar sem sérstakur starfsmaður vinnur við að aðstoða deildir og
landssambönd.
Af viðfangsefnum sem deildir hafa unnið að má m.a. nefna:
- Útgáfu bókar, bæklinga og veggspjalda.
- Blaðaskrif um menntamál og menningarmál.
- Fræðsluerindi um það sem er efst á baugi í fræðslu- og menningarmálum og/eða tengt verkefnum deilda.
- Skoðun og umfjöllun um frumvörp til laga og áhersla lögð á að hafa áhrif á löggjöf.
- Skoðun og umfjöllun um nýjar námskrá hverju sinni og önnur skólamál.
- Unnið að gagnkvæmum kynnum milli skólastiga og fræðslustofnana.
- Heimsóknir á ýmsar stofnanir og á menningarviðburði.
- Bókmenntaumræða.
- Land- og náttúruskoðun.
Uppfærður: mán 21.jan 2008


