Að fá tengil í vefinn frá alþjóðasambandinu
Alþjóðasambandið setur fram nokkur skilyrði sem landssambönd og deildir þurfa að uppfylla til að þeir setji tengil í vefinn frá vefsíðu alþjóðasambandsins (sjá landssambandssíður – deildarsíður). Þessi skilyrði eru hvorki mörg né flókin og eru þau sömu hvort heldur um ræðir vef landssambands eða deildar.
Skilyrðin eru þessi:
- Á vefnum komi fram markmið og stefna samtakanna (Mission Statement and Purposes)
- að hægt sé að sjá á öllum síðum hvenær þær voru síðast uppfærðar
- að vefurinn sé ekki notaður í auglýsingaskyni
- að skriflegt samþykki félagskvenna (sem getur þess vegna verið í formi tölvupósts) liggi fyrir birtingu á:
-
- heimilisföngum (addresses) bæði rafrænum (E-mail) og venjulegum póstföngum sem og birtingu á síma- og faxnúmerum.
- birtingu á fréttum og myndum af einstökum félagskonum eða hópum
- birtingu á efni sem er höfundarréttarvarið
- að upplýsingar á síðum séu þær nýjustu hverju sinni og að síður séu uppfærðar reglulega
- upplýsingar um hvernig hafa má samband við vefstjóra séu sýnilegar á vefnum
- að upplýsingarnar á vefnum gefi rétta mynd af starfi deildarinnar
Nánar má lesa um þessar reglur á þessari síðu á vef alþjóðasambandsins en þar er einnig hægt að fylla út form til að senda og biðja um að fá tengil í vefinn þegar ofantöldum skilyrðum hefur verið fullnægt. Einnig má fylla út beiðnina í Word-skjali og senda til Bevery Helms sem sér um þessa hluti hjá Alþjóðasambandinu.
Ætlunin er að bera upp reglur um rafræn samskipti á vegum samtakanna á alþjóðaþinginu í Spokane í júlí (2010) en reglurnar voru samþykktar í stjórn samtakanna í janúar 2010. Rétt er að vefstjórar hverrar deildar kynni sér þær reglur.
Þegar vefur hefur verið samþykktur þá fá landsambönd/deildir sent sérstakt merki sem setja má á vefinn sem einskonar staðfestingu á því að vefurinn uppfylli skilmála alþjóðasambandsins um vefsíður.
Uppfærður: mán 21.jún 2010


