Delta-Kappa-Gamma. Félag kvenna í fræðslustörfum

Þetta er vefur Delta Kappa Gamma á Íslandi

Velkomin á vef Zetadeildar

Zetadeild  starfar á Austurlandi og félagskonur koma víðs vegar af Fljótsdalshéraði og Fjörðunum. Deildin fundar víða á starfssvæðinu og notar tækifærið til að kynnast ýmiss konar fræðslustarfsemi og aðstöðu fyrir slíkt starf í tengslum við fundina á þeim stöðum sem fundað er hverju sinni.

Fréttir

Lokafundur starfsársins 2009-10

Dagskrá Neskaupstað 17. maí 2010  kl. 18:00 (þjóðhátíðardagur Norðmanna).

1.    Hittumst við snjóflóðavarnargarðinn fyrir ofan Neskaupstað. Best að aka efri götuna inn í bæinn örlítið  fram hjá Verkmenntaskólanum þar er skilti sem vísar á garðana  og tjaldstæðið.

2.    Förum í Nesbæ (kaffihús)  - þar verður boðið upp á austurlenskan rétt + kaffi og súkkulaði – Verð 2000 kr (ég ákvað að gera vel við okkur þar sem þetta er síðasta fundur vetrarins)

3.    Orð dagsins – Ólöf Guðmundsdóttir

4.    Almenn fundarstörf.

Fyrirgefði stúlkur mínar hvað dagskráin berst seint.

Vinsamlegast látið Björgu vita í síðasta lagi á mánudagsmorguninn um mætingu.bjorg@skolar.fjardabyggd.is

 

 

 


Síðasti fundur Zetadeildar í vetur verður 17. maí

Síðasti fundur Zetadeildar í vetur verður haldinn þann 17. maí n.k. kl. 18.00  í  Neskaupstað. Nánari staðsetning verður send út er nær dregur fundinum. Á fundinum fer fram innsetning nýrrar stjórnar.

Vonast til að sem flestar Zetakonur mæti á fundinn.

Forseti.


Aprílfundur Zetadeildar

Næsti fundur Zetadeildar verðu haldinn á Stöðvarfirði mánudaginn 26. apríl kl. 18.00.

Fundarstaður er Stöðarfjarðarkirka.

Á dagskrá er stjórnarkjör í deildinni,  en þema fundarins er Listalíf á Stöðvarfirði. Farið verður í heimsókn í Gallerí Snærós þar sem sýning Önnu Hrefnudóttur fer fram en síðan verður Grafíkverkstæði Ríkharðs Valingojer heimsótt. Umsjón með aðalefni fundar er í höndum Guðrúnar Ármanndóttur og Þórönnu Lilju Snorradóttur sem báðar eru kennarar við Grunnskóla Stöðvarfjarðar.

Anna María Arnfinnsdóttir námsráðgjafi í Egilsstaðskóla verður með orð til umhugsunar.

Boðið verður upp á súpu og brauð og kostar máltíðin 1500 krónur.


Jólafundur á Fáskrúðsfirði

Jólafundur í Zetadeild  verður haldinn í Skólamiðstöðinni Fáskrúðsfirði (Grunnskólanum)  mánudaginn 7. desember  kl. 18.00.

 

Á dagskrá er meðal annars:

 

Hildur Magnúsdóttir flytur orð til umhugsunar.

 

Inntaka nýrrar félagskonu.

 

Borin verður  fram Fiskisúpa og brauð frá Cafe Sumarínu verð kr. 1.150 kr.

 

Skólamiðstöðin verður skoðuð og svo fáum við fræðslu í máli og myndum um Franska bæinn Fáskrúðsfjörð.

 

Sjáumst sem flestar og eigum notalega stund saman á aðventunni.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning