Fréttir

Vorfundur á Hallormsstað

Fundur í Z-deild DKG haldinn 08.06. 2021 í Hallormsstðaskóla. Góð mæting var á fundinn og höfðu félagskonur á orði að gott væri að hittast loks eftir alla netfundi vetrarins. Við heimsóttum Hallormsstaðaskóla og fengum góða kynningu og leiðsögn um skólann. Bryndís Fiona Ford, skólameistari Hallormstaðaskóla, sagði okkur frá starfsemi skólans og þeim breytingum sem hafa orðið. Nemendur eru að koma í skólann eftir stúdentspróf, sveinspróf eða aðra sambærilega menntun og er námið við skólann einingabært í háskóla. Eftir hefðbundin fundarstörf og göngu um skólahúsnæðið snæddu félagskonur ljómandi góða súpu og dásamlegt kartöflubrauð með. Síðan var haldið út í sumarfrí.
Lesa meira

Fundur í haldinn í Vök.

Fundur í Z-deild DKG haldinn 24.03. 2021 kl. 17 í Vök á Fljótsdalshéraði.
Lesa meira

Jólafjarfundur haldinn 10. desember 2020

Enn einn fjarfundurinn. Við erum orðnar mjög vanar þeim og jólafundurinn því haldinn með því fyrirkomulagi.
Lesa meira

Fjarfundur í nóvember 2020

Anna fundur í Zeta deild var haldinn 4. nóvember 2020.
Lesa meira

Fyrsti fundur í zetadeild haustið 2020

Lesa meira

Aðalfundur í Zetadeild

Aðalfundur Zetadeildar var haldinn í Bókakaffi í Fellabæ 2. júní 2020. Þar voru almenn aðalfundarstörf og ný stjórn tók við.
Lesa meira

Fjarfundur í zetadeild 15. apríl 2020.

Fjórði fundur Z-deildar DKG veturinn 2019-2020, haldinn 15. apríl 2020 í gegnum Google Meet fjarfundarkerfi á tímum samkomubanns vegna COVID-19 faraldurs. Góð dagsetning það sem fundinn bar upp á 90 ára afmælisdag Frú Vigdísar Finnbogadóttur fyrrverandi forseta og heiðursfélaga í DKG.
Lesa meira

Einkennilegt starfsár hjá zetadeild, janúar til apríl 2020.

Ekki hefur verið hægt að halda fundi í zeta deild það sem af er ársins 2020. Veður stoppaði okkur af í að fara á fund á Egilsstöðum í febrúar og einnig féll niður fundur á Seyðisfirði í mars. Veðrið, þessi vaff orð. Aðalfund átti síðan að halda í apríl lok en dagsetning er óákveðin og ræðst af þeim aðstæðum sem nú eru í þjóðfélaginu. Við í zetadeild sendum góðar kveðjur DKG systra um allt land.
Lesa meira

Jólafundur hjá Zeta deild.

Þriðji fundur Zeta deildar var haldinn 3. desember 2019 á Hotel Capitano í Neskaupstað. Um fundinn sáu þær Brynja Garðarsdóttir, Helga Magnea Steinsson og Steinunn Lilja Aðalsteinsdóttir. Auk þeirra mættu níu aðrar félagskonur.
Lesa meira

Annar fundur í Zetadeild haldinn 6. nóvember.

Annar fundur Zetadeildar DKG veturinn 2019 -2020, var haldinn 6. nóvember í Kaffi Sumarlínu á Fáskrúðsfirði. Skipulag fundar sáu þær Björg Þorvaldsdóttir, Petra Jóhanna Vignisdóttir og Jórunn Sigurbjörnsdóttir um. Á fundinn mættu sjö félagskonur og gestir. Þær; Sigrún Birna Björnsdóttir Fræðslustjóri Alcoa og Svandís Egilsdóttir skólastjóri grunnskóla Seyðisfjarðar.
Lesa meira